Bergmál eftir Rögnu Fróða í Hafnarborg
07. mars, 2026
Laugardaginn 7. mars kl. 15 opnar sýningin Bergmál eftir Rögnu Fróða, í sýningarstjórn Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur.
Á sýningunni býður listakonan áhorfendum inn í töfrandi heim lita, forma og áferða þar sem textíll gegnir lykilhlutverki. Öll byggja verkin á teikningum sem verða til í flæði og beinu samtali milli handar og undirmeðvitundar, þar sem Ragna flakkar milli frjálsrar teikningar, stafrænnar úrvinnslu og handverks.