07. mars, 2026
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Laugardaginn 7. mars kl. 15 opnar sýningin Bergmál eftir Rögnu Fróða, í sýningarstjórn Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur.
Á sýningunni býður listakonan áhorfendum inn í töfrandi heim lita, forma og áferða þar sem textíll gegnir lykilhlutverki. Öll byggja verkin á teikningum sem verða til í flæði og beinu samtali milli handar og undirmeðvitundar, þar sem Ragna flakkar milli frjálsrar teikningar, stafrænnar úrvinnslu og handverks.
Endurtekningin gegnir einnig mikilvægu hlutverki og getur sama teikningin birst oftar en einu sinni í mismunandi verkum en þó aldrei á sama hátt. Í gegnum vinnuferlið endurkastast form og tengjast í verkum sem bergmála sín á milli.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.
Saturday March 8th at 3 p.m., we invite you to the opening of our new exhibition – Echo by Ragna Fróða, curated by Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir.
The artist invites us into an alluring world of colours, forms and textures, where textiles occupy a central position. The works are all based in drawing and are created in a state of flow, in direct dialogue between the hand and the subconscious, as Ragna moves between intuitive drawing, digital processes and traditional craft practices.
Repetition is also an essential part of the process; the same drawing may appear again and again in new works, though never in precisely the same way. Through this process, forms reflect and connect in works that echo one another.
Free entry – everyone welcome.