23. júní, 2026
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Glóandi Jökull – Glowing Glacier Glass Festival verður sett 24. júní 2026 á Hellissandi og stendur til 19. júlí. Á þessum tíma breytist byggðarkjarninn undir Snæfellsjökli í lifandi miðstöð glerlistar þar sem sýningar, glerblástur, vinnustofur, fyrirlestrar og fjölskylduviðburðir fara fram á mörgum stöðum í þorpinu
07. mars, 2026
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Laugardaginn 7. mars kl. 15 opnar sýningin Bergmál eftir Rögnu Fróða, í sýningarstjórn Ingunnar Fjólu Ingþórsdóttur.
Á sýningunni býður listakonan áhorfendum inn í töfrandi heim lita, forma og áferða þar sem textíll gegnir lykilhlutverki. Öll byggja verkin á teikningum sem verða til í flæði og beinu samtali milli handar og undirmeðvitundar, þar sem Ragna flakkar milli frjálsrar teikningar, stafrænnar úrvinnslu og handverks.
04. febrúar, 2026
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Í tengslum við sýningu Jóns Guðmundssonar SKAPAÐ ÚR SKÓGINUM er blásið til fræðandi erindis laugardaginn 7. febrúar kl 14 í sýningarrými Handverks og hönnunar Eiðistorgi 15 (við hliðin á Vínbúðinni)
30. janúar, 2026
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Vegna sérstakra aðstæðna er sýningin Skapað úr skóginum lokuð í dag, föstudag en opnar á morgun kl 13-16.
22. janúar, 2026
Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir
Verið hjartanlega velkomin á opnun sýningarinnar SKAPAÐ ÚR SKÓGUM laugardaginn 24. janúar kl 14-17
Jón Guðmundsson, plöntulífeðlisfræðingur og trérennismiður sýnir fjölbreytta rennda muni á sýningarsal Handverks og hönnunar á Eiðistorgi.
Fallegir viðarbútar eru nýttir þar sem fegurð viðarins er aðalatriðið og hún látin koma fram í hlutnum. Ýtt er undir einkennin með því að nota olíur sem flæða vel og laða fram viðaræðar og viðarsveppi. Litir svo sem mýrarauði, málm og plöntulitir eru notaðir til að ýkja einkenni.