Fréttir

Opið fyrir umsóknir í keramik - diplómanám

Opið fyrir umsóknir í keramik - diplómanám í Myndlistaskólanum í Reykjavík

Húsgagnasmíði í Tækniskólanum - útskriftarsýning

Sýning í húsgagnasmíði verður í Tækniskólanum 12. maí kl. 11 - 18.

Fataiðnbraut Tækniskólans - Útskriftarsýning

Útskriftarsýning 13. maí kl. 13 - 16. Í tilefni útskriftar í fataiðn er haldin sýning á því sem nemarnir hafa gert í náminu.

Vorsýning Hönnunar- og nýsköpunarbrautar 2017

Vorsýning á verkefnum nemenda sem unnin hafa verið veturinn 2016 - 2017. Sýningin er í matsal nemenda á 3. hæð í Tækniskólanum á Skólavörðuholti.

Teikn/Gestures: Útskriftarsýning BA nema í hönnun og myndlist

Listasafn Reykjavíkur hýsir útskriftarsýningu tuga nemenda á BA stigi í myndlistardeild og hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands í Hafnarhúsinu.

Útskriftarsýning meistaranema LHÍ

Útskriftarsýning meistaranema í myndlist og hönnun stendur yfir í Listaháskóla Íslands. Leiðsögn sunnudaginn 14. maí kl. 15.00.

Vorsýning Myndlistaskólans í Reykjavík

Árleg vorsýning Myndlistaskólans í Reykjavík verður opnuð fimmtudaginn 11. maí kl. 17:00 í húsnæði skólans á 2. og 3. hæð í JL-húsinu, Hringbraut 121.

Velkomin í Ráðhús Reykjavíkur

Í dag var opnuð sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þetta er stór sýning og kynning á handverki, hönnun og listiðnaði.