Um HANDVERK OG HÖNNUN

Skrifstofa HANDVERKS OG HÖNNUNAR er staðsett á Eiðistorgi 15, SeltjarnarnesiSjálfseignarstofnunin HANDVERK OG HÖNNUN var stofnuð í janúar 2007. Hún tók við af verkefninu HANDVERK OG HÖNNUN sem stofnað var 1994. Sjálfseignarstofnunin er rekin með stuðningi Mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Meginmarkmið HANDVERKS OG HÖNNUNAR er að stuðla að eflingu handverks, listiðnaðar og hönnunar, og að auka skilning almennt á menningarlegu, listrænu og hagnýtu gildi handverks, hönnunar og listiðnaðar með fjölbreyttri kynningarstarfsemi.