HANDVERK OG HÖNNUN
HANDVERK OG HÖNNUN
  • Fólkið
    • skráning í gagnabanka
  • Fréttir
    • Fréttir í áskrift
  • Fræðsla
    • Nám/námskeið
    • Styrkir
    • Fróðleikur
    • Tenglar
    • Útgáfa
  • Sýningar
  • Um HANDVERK OG HÖNNUN
    • Markmið
    • Þjónusta
    • Skýrslur
      • Stefnumótun H&H 2022
    • Starfsmenn og stjórn
    • Verkefni
    • Erlent samstarf
  • Eng

Skörin

Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta
Frá sýningu Dóru Árna

Ljósin í bænum - Dóra Árna

  • 12 stk.
  • 05.12.2017

Þann 28. febrúar 2008 opnaði Dóra Árna sýningu á postulínsverkum á skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN. Sýningin kallast Ljósin í bænum. Þar eru til sýnis lampar úr postulíni.

„Í þessum verkum er ég að vinna með birtuna og fínleika postulínsins og munstur í verkunum sæki ég í gamla hönnun íslenska faldbúningsins.” segir Dóra. Dóra Árnadóttir útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands 2002 og hefur síðan þá unnið að list sinni.

Skoða myndir
Frá sýningu Himneskra herskara

Himneskir herskarar

  • 16 stk.
  • 05.12.2017

Þann 7. feb. 2008 var opnuð sjötta sýningin Á skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN. Að þessu sinni er það Páll S. Garðarsson sem þar sýnir verk sín.

Páll er með handverkstæðið Himneskir herskarar Þar er tálgað í tré og unnið með pappír, vír og ýmis önnur efni. Hann býr til fígúrur af ýmsu tagi, t.d. engla, hreindýr, elgi, fugla og fleira. Einnig býr hann til fermingarstyttur, jólatréstoppa, aðventukransa og kertakrónur.

Skoða myndir
RENDUR - frá sýningu

RENDUR

  • 9 stk.
  • 05.12.2017

Þann 8. nóv. 2007 var opnuð fimmta sýningin Á skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN. Að þessu sinni voru það Hildur Einarsdóttir og Björg Pjetursdóttir sem þar sýna verk sín undir merkinu Rendur.

Rendur er nýtt hönnunarfyrirtæki stofnað af þeim Hildi og Björgu. Rendur hefur að leiðarljósi að framleiða gæða vörur þar sem mismunandi samspil efnis, hönnunar og handverks gerir hvert stykki einstakt. Rendur notar ónotað umfram efni og afganga í stað þess að stuðla að meiri framleiðslu og hefur þannig jákvæð áhrif á umhverfið. Rendur vinnur með handverksfólki á Íslandi og nýtir þekkingu þeirra sem má rekja til gamalla hefða. Rendur ætlar að láta gott af sér leiða í formi gjafa af eigin framleiðslu. Rendur framleiðir skemmtilegar, litríkar og handunnar nytjavörur sem krydda hversdagsleikann. Efniviðurinn er garn, efni, tölur og í raun allt efni sem fellur til inni á heimilum og hjá fyrirtækjum. Vörurnar eru t.a.m fatnaður, grímubúningar, leikföng og innanstokksmunir sem eru handgerðar á Íslandi. Nýtnin vísar í fyrri tíma þegar ekkert var látið fara til spillis. Vörurnar endurspegla sköpunargleðina sem er driffjöður fyrirtækisins en hugmyndirnar og samstarfsfólkið stjórnast af því efni sem fyrirtækinu áskotnast. Varan og framleiðslan er því óaðskiljanleg. Línan frá Röndum sem sýnd er Á skörinni er prjónalína fyrir leikskólabörn sem samanstendur af peysum, krögum, lambhúshettum, húfum, vettlingum og sokkum. Flíkurnar eru útfærðar í samvinnu við handverkskonur sem síðan prjóna eftir hönnun Randa.

Skoða myndir
Frá sýningu Elísabetar Haraldsdóttur

Elísabet Haraldsdóttir

  • 8 stk.
  • 05.12.2017

Þann 13. sept. 2007 var opnuð fjórða sýningin Á skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN. Að þessu sinni er það Elísabet Haraldsdóttir, leirlistakona sem sýnir verk sín.

Elísabet er leirlistakona og býr á Hvanneyri. Verkin sem hún sýnir Á skörinni eru annars vegar skálar og hins vegar vasar.

Um þessi verk segir Elísabet: „Skálarnar sem sýndar eru á skörinni eru upphaflega unnar vegna vinnu minnar við gerð skírnarskálar fyrir barnabarn mitt. Þær eru renndar, tálgaðar og brenndar með hefðbundnum hætti. Mósaíkið er innlitað postulín. Kúluformin hafa verið mér hugleikin til margra ára og eru þau hugsuð sem vasar og gefa möguleika til þess að raða í þá blómum og greinum á margvíslegan hátt.“

Skoða myndir
Frá sýningu Dagnýjar Þrastardóttur

Dagný Þrastardóttir

  • 7 stk.
  • 05.12.2017

Þann 9. ágúst 2007 var opnuð þriðja sýningin Á skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN. Að þessu sinni er það Dagný Þrastardóttir, glerlistakona sem sýnir verk sín.

Dagný er glerlistakona og húsgagnasmiður og býr á Ísafirði. Þar hefur hún rekið Rammagerð Ísafjarðar sem er glerverkstæði og gallerí í mörg ár. Hún nam húsgagnasmíði í Iðnskólanum í Reykjavík og starfaði sem slík í nokkur ár. Hún byrjaði að vinna í gler fyrir 12 árum. Hún hefur sótt námskeið í glerbræðslu m.a. í Tyrklandi og nam í eitt ár við Edinburgh College of Art.

Dagný hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum en þetta er önnur einkasýning hennar.

Skoða myndir
Frá sýningunni

Fitjakot - Margrét Þórarinsdóttir - Snjólaug G. Sigurjónsdóttir

  • 15 stk.
  • 04.12.2017

Margrét Þórarinsdóttir – Frá fjöru til fjalls

Margrét Þórarinsdóttir sýnir einstaka handgerða fugla. Margrét hefur sótt fjölmörg námskeið hjá Myndlistaskóla Reykjavíkur í gegnum tíðina. Hún hefur búið til fugla í hátt í tuttugu ár og fengist við ýmist annað handverk. „Frá fjöru til fjalls“ kallar Margrét fuglasýninguna núna og eins og nafnið getur til kynna eru fuglarnir fjölbreyttir.

Snjólaug Sigurjónsdóttir – Hjartans mál Snjólaug Guðrún Sigurjónsdóttir sýnir útsaumaðar myndir á sýningunni. Snjólaug lauk námi í Textilseminariet í Skals og í Vesthimmerlandstextilskole í Danmörku 2006 og hefur hún aðallega fengist við að prjóna á vél og þæfa, og sauma út. Útsaumurinn er henni mjög hjartfólginn, þar leikur hún sér með liti, form og áferð og má segja að Snjólaug sé að reyna að mála með nálinni. Á sýningunni „Á skörinni“ sýnir hún myndaröð sem kallast „Hjartans mál“. Okkar margbreytilegu tilfinningar eru tengdar við hjartað og er Snjólaug í myndum sínum að túlka þær í litum, formi, efni og áferð.

Fitjakot – Hin mörgu andlit Fridu Guðrún Hannele Henttinen og Rannveig Helgadóttir vinna saman undir nafninu Fitjakot. Á sýningu Fitjakots eru púðar með hinum mörgu andlitum Fridu Kahlo. Kveikjan er hið sterka og litríka myndmál listakonunnar sem málaði m.a. margar sjálfsmyndir. Púðar hafa það hlutverk að vera til þæginda en ekki síður augnayndi.

Skoða myndir
Frá opnun sýningarinnar

Frá Viborg til www - Katrín Jóhannesdóttir

  • 17 stk.
  • 06.12.2017

Útskriftarsýning Katrínar Jóhannesdóttur „frá Viborg til www“ á Skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN var opnuð þann 13. mars.

Á sýningunni varlokaverkefni Katrínar úr vélprjóni frá Textilseminariet í Viborg til sýnis. Prjónaðir kjólar, peysur og fylgihlutir, hannað með íslenska þjóðbúninginn í huga og hugsað þannig að hverja flík sé hægt að nota á fleiri en einn hátt.

Skoða myndir
Frá sýningunni Lavaland

LAVALAND - Unnur S. Gröndal

  • 10 stk.
  • 06.12.2017

Sýning Unnar S Gröndal Lavaland var opnuð þann 2. apríl á skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN, Aðalstræti 10, Reykjavík.

Á sýningunni Lavaland er lokaverkefni Unnar frá Designskolen Kolding, Danmörku til sýnis, skúlptúrar unnir í svartan leir.

Skoða myndir
Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta

HANDVERK OG HÖNNUN

  • Eiðistorg 15, Seltjarnarnesi
  • S. 551 7595
  • handverk@handverkoghonnun.is
  • 170 Reykjavík
  • IconFacebook
  • IconPóstlisti
  • IconInstagram