Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur

Sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur var haldin í fjórtánda sinn dagana 5. til 9. nóvember 2015. Sem fyrr var gróskan og fjölbreytnin mikil og meðal þess sem hægt var að skoða á sýningunni voru skartgripir, barnaföt, munir úr tré og horni og beini, leðurvörur, skór og fatnaður. Þátttakendur voru 60 talsins.

Skúlaverðlaunin 2015 voru afhent á fyrsta opnunardegi sýningarinnar. Verðlaunin hlaut Philippe Ricart fyrir handofin teppi úr Íslenskri ull. Teppin eru ofin með salunsvefnaði og vaðmálsáferð bæði fléttað vaðmál og víxlað vaðamál. Þetta eru einstaklega falleg og vönduð teppi og að öllu leyti handgerð.

Myndir frá sýningu

Skúlaverðlaun 2015

Fjölmiðlaumfjöllun

Dags: 05.11 - 09.11 2015
Staðsetning: Ráðhús Reykjavíkur

Bæklingur:

Þátttakendur

B.O.M. Silfur

B.O.M. Silfur - lifandi skartgripir

Skoða nánar: B.O.M. Silfur - lifandi skartgripir
Guðný Magnúsdóttir

Guðný Magnúsdóttir

Skoða nánar: Guðný Magnúsdóttir
Handbróderaðir púðar

Handbróderaðir púðar - Þórdís Jónsdóttir

Skoða nánar: Handbróderaðir púðar - Þórdís Jónsdóttir
HIldur H. List-Hönnun

HILDUR H. LIST-HÖNNUN

Skoða nánar: HILDUR H. LIST-HÖNNUN
Hrönn Waltersdottir

Hrönn Waltersdóttir

Skoða nánar: Hrönn Waltersdóttir
Kitchen Knives

Icelandic Kitchen Knives

Skoða nánar: Icelandic Kitchen Knives
Krístín Þóra

Kristín Þóra Guðbjartsdóttir

Skoða nánar: Kristín Þóra Guðbjartsdóttir
KrÓsk by Kristín Ósk

KRÓSK by Kristín Ósk

Skoða nánar: KRÓSK by Kristín Ósk
Ljósberinn

Ljósberinn - skermagerð

Skoða nánar: Ljósberinn - skermagerð
Margrét Jónsdóttir

Margrét Jónsdóttir

Skoða nánar: Margrét Jónsdóttir
Ragna Ingimundardóttir

Ragna Ingimundardóttir

Skoða nánar: Ragna Ingimundardóttir
svafaeinarsdottir

Svafa Björg Einarsdóttir

Skoða nánar: Svafa Björg Einarsdóttir
Tíra ljómandi fylgihlutir

Tíra ljómandi fylgihlutir

Skoða nánar: Tíra ljómandi fylgihlutir
 Þuríður Ósk Smáradóttir

Þuríður Ósk Smáradóttir

Skoða nánar: Þuríður Ósk Smáradóttir

Skúlaverðlaun 2015

Philippe Ricart hlaut Skúlaverðlaunin 2015 á sýningunni Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Philippe Ricart hlaut Skúlaverðlaunin 2015Skúlaverðlaunin 2015 voru afhent á fyrsta opnunardegi sýningarinnar Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur. Verðlaunin hlaut Philippe Ricart fyrir handofin teppi úr Íslenskri ull. Teppin eru ofin með salunsvefnaði og vaðmálsáferð bæði fléttað vaðmál og víxlað vaðamál. Þetta eru einstaklega falleg og vönduð teppi og að öllu leyti handgerð.
Philippe sem búsettur er á Akranesi, er einn af okkar fremstu listhandverksmönnum er mjög fjölhæfur og hefur starfað í mörg ár. Hann vinnur mest úr íslensku hráefni og mest í íslenska ull. Hann vinnur líka töluvert í íslenskan við, bæði lerki og birki. Philippe er fæddur í Frakklandi en hefur búið á Íslandi í áratugi. 
Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og var það Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri sem afhenti verðlaunin.
Sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur var haldin dagana 5.-9. nóvember og voru þátttakendur 58 talsins. Þeir sem valdir voru til þátttöku í sýningunni nú í nóvember gátu tilkynnt til HANDVERKS OG HÖNNUNAR nýja vöru í verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn.  Skilyrðin voru að hlutirnir  máttu hvorki  hafa  verið sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna í Ráðhúsinu. tæplega tuttugu  tillögur bárust og faglega valnefnd skipuðu Elín Bríta Sigvaldadóttir, vöruhönnuður og Helga Pálína Brynjólfsdóttir, textílhönnuður.
Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík. 

Hér má sjá myndir frá afhendingu Skúlaverðlaunanna 2015

Hér má lesa viðtal við Philippe Ricart sem birtist í Vikunni þann 8. október 2015 (39. tbl. 77. árg.)

Fjölmiðlaumfjöllun

Fréttablaðið 9. nóvember 2015Fréttablaðið 9. nóvember 2015Vikan 8. október 2015