Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur

Sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur var haldin dagana 6. til 10. nóv. 2014. Sem fyrr er gróskan og fjölbreytnin mikil og meðal þess sem hægt var að skoða á sýningunni í maí eru skartgripir, barnaföt, munir úr tré og horni og beini, leðurvörur, skór og fatnaður.

Þetta var í þrettánda sinn sem HANDVERK OG HÖNNUN stóð fyrir þessum viðburði en sýningin var haldin í fyrsta sinn árið 2006. Það er óhætt að segja að sýningunni hafi verið vel tekið frá upphafi og hefur aðsóknin alltaf verið mjög mikil. Þetta er einstakt tækifæri fyrir alla að kynna sér fjölbreytt íslenskt handverk, listiðnað og hönnun á einum stað. Það eru listamennirnir og hönnuðirnir sjálfir sem kynna vörur sínar á sýningunni. 

Skúlaverðlaun 2014

Myndir frá sýningunni

Dags: 06.11 - 10.11 2014
Staðsetning: Ráðhús Reykjavíkur

Bæklingur:

Þátttakendur

bolabitur

Bolabítur/Elsku Alaska

Skoða nánar: Bolabítur/Elsku Alaska
ernaskula

Erna Elínbjörg Skúladóttir

Skoða nánar: Erna Elínbjörg Skúladóttir
færid

Færid / Hlín Reykdal

Skoða nánar: Færid / Hlín Reykdal
Guðný Magnúsdóttir

Guðný Magnúsdóttir

Skoða nánar: Guðný Magnúsdóttir
Handbróderaðir púðar

Handbróderaðir púðar - Þórdís Jónsdóttir

Skoða nánar: Handbróderaðir púðar - Þórdís Jónsdóttir
Hanna Gréta

Hanna Gréta Pálsdóttir

Skoða nánar: Hanna Gréta Pálsdóttir
Hólmfríður Vídalín Arngríms

Hólmfríður Vídalín Arngríms

Skoða nánar: Hólmfríður Vídalín Arngríms
Hrönn Waltersdottir

Hrönn Waltersdóttir

Skoða nánar: Hrönn Waltersdóttir
Ljósberinn

Ljósberinn - skermagerð

Skoða nánar: Ljósberinn - skermagerð
Ólöf Erla Bjarnadóttir

Ólöf Erla Bjarnadóttir

Skoða nánar: Ólöf Erla Bjarnadóttir
Ragna Ingimundardóttir

Ragna Ingimundardóttir

Skoða nánar: Ragna Ingimundardóttir
skopunarmidstodin

Sköpunarmiðstöðin

Skoða nánar: Sköpunarmiðstöðin
Tíra ljómandi fylgihlutir

Tíra ljómandi fylgihlutir

Skoða nánar: Tíra ljómandi fylgihlutir
 Þuríður Ósk Smáradóttir

Þuríður Ósk Smáradóttir

Skoða nánar: Þuríður Ósk Smáradóttir

Skúlaverðlaun 2014

Lára Gunnarsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2014 á sýningunni Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Skúlaverðlaunin 2014 hlaut Lára Gunnarsdóttir fyrir handgerða smáfugla úr birki. Lára er ein af okkar fremstu listhandverksmönnum og hefur starfað í mörg ár. Hún er með mjög skemmtilegan og persónulegan stíl og vinnur eingöngu úr tré og þá oftast úr íslensku birki. Auk verðlaunanna var veitt ein viðurkenning en hana hlaut Ólöf Erla Bjarnadóttir leirlistamaður fyrir verkið „Möttulkvika“ sem er kökudiskur á fæti.
Verðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og var það Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri sem afhenti verðlaunin í lok opnardags sýningarinnar.
Þeir sem valdir voru til þátttöku í sýningunni nú í nóvember gátu tilkynnt til HANDVERKS OG HÖNNUNAR nýja vöru í verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn. Skilyrðin voru að hlutirnir máttu hvorki hafa verið sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna í Ráðhúsinu. Um tuttugu tillögur bárust og faglega valnefnd skipuðu Edda Bergsteinsdóttir gullsmiður og Guðný Hafsteinsdóttir leirlistamaður valdi verðlaunahafa.
Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík.

Smelltu hér til að skoða myndir frá afhendingu Skúlaverðlaunanna 2014

Fjölmiðlaumfjöllun

Fréttablaðið 7. nóvember 2014Fréttablaðið 13. nóvember 2014Fréttablaðið 13. nóvember 2014Fréttablaðið 17. nóvember 2014Fréttablaðið 20. nóvember 2014Fréttablaðið 20. nóvember 2014Bændablaðið 20. nóvember 2014