XpoNorth í Inverness í Skotlandi

Dagana 7. og 8. júní fer fram hátíð sem nefnist XpoNorth og er haldin í Inverness í Skotlandi. Um er að ræða tveggja daga árlegan viðburð þar sem áhersla er á fjölbreyttar skapandi greinar.

Í ár munu nokkrir Íslendingar taka þátt í XpoNorth Crafts, Fashion and Textiles en sýningin SHIFT sem sett var upp í Gallerí Gróttu  á HönnunarMars 2017 verður sett upp á hátíðinni, auk þess sem nokkrir Íslendinganna munu taka þátt í pallborðsumræðum. 

Hér má sjá alla dagskrána

Á SHIFT er stefnt saman fjölbreyttum verkum skoskra og íslenskra samtímahönnuða sem vinna í leir, tré, eðalmálma og textíl. Þeir hittust í fyrsta sinn á HönnunarMars, skiptust á hugmyndum og byrjuðu þróunarvinnu fyrir áframhaldandi verkefni og nú er komið að næsta skrefi í samstarfinu. 

Tilgangur SHIFT er að gefa ólíkum hönnuðunum kost á faglegu samtali og útbúa farveg þar sem þeir geta veitt hver öðrum innblástur. Fyrsta sýningarverkefni hópsins var í Gallerí Gróttu en með áframhaldandi samstarfi í gegnum röð sýninga og viðburða í Skotlandi og á Íslandi munu hönnuðirnir fá tækifæri til að kynnast heimkynnum, umhverfi, hæfileikum, reynslu, efnisnotkun og tækni hvers annars. 

Það eru skosku samtökin Emergent sem standa fyrir þessu verkefni og er HANDVERK OG HÖNNUN samstarfsaðili þeirra. Litið er svo á að verkefnið sé í senn vettvangur fyrir ferskar hugmyndir og nýja nálgun í skapandi framleiðslu. Því er einnig ætlað að efla og búa til tengingar við nýja markhópa og stuðla að nánari tengslum milli Íslands og Skotlands.

Þátttakendur:

Agustav (Ágústa Magnúsdóttir og Gústav Jóhannsson) www.agustav.com

Arndís Jóhannsdóttir www.disa.is

Doppelganger (Guðrún Lárusdóttir og Ragna Fróða) www.doppelgangercollection.com

Guðný Hafsteinsdóttir www.gudnyhaf.is

Julia Smith  www.juliasmithceramics.com

Hilary Grant www.hilarygrant.co.uk

Diggory Brown (Netty Sopata) www.diggorybrown.com

Eileen Gatt www.eileengatt.co.uk

Yellow Broom (Clare Waddle og David Robson) www.yellowbroomproduct.co.uk

 

 Sýningarstjórar:

Carol Sinclair og Pamela Conacher 

Nánari upplýsingar um samstarfið má finna hér