SHIFT

Fimm íslenskir og sex skoskir hönnuðir komu saman  í fyrsta sinn í nýrri, tilraunakenndri sýningu sem var opnuð í Gallerí Gróttu á Seltjarnarnesi þann 22. mars. Sýningin bar yfirskriftina SHIFT.

Á sýningunni var stefnt saman fjölbreyttum verkum skoskra og íslenskra samtímahönnuða sem vinna í leir, tré, eðalmálma og textíl. Þeir hittust í fyrsta sinn á HönnunarMars 2017, skiptust á hugmyndum og byrjuðu þróunarvinnu fyrir áframhaldandi verkefni. Tilgangur SHIFT er að gefa ólíkum hönnuðunum kost á faglegu samtali og útbúa farveg þar sem þeir geta veitt hver öðrum innblástur. Fyrsta sýningarverkefni hópsins er í Gallerí Gróttu en með áframhaldandi samstarfi í gegnum röð sýninga og viðburða í Skotlandi og á Íslandi munu hönnuðirnir fá tækifæri til að kynnast heimkynnum, umhverfi, hæfileikum, reynslu, efnisnotkun og tækni hvers annars. 

Samstarfsverkefnið er í senn vettvangur fyrir ferskar hugmyndir og nýja nálgun í skapandi framleiðslu. Því er einnig ætlað að efla og búa til tengingar við nýja markhópa og stuðla að nánari tengslum milli landanna.

Þátttakendur:

Julia Smith  www.juliasmithceramics.com

Hilary Grant www.hilarygrant.co.uk

Diggory Brown (Netty Sopata) www.diggorybrown.com

Eileen Gatt www.eileengatt.co.uk

Yellow Broom (Clare Waddle og David Robson) www.yellowbroomproduct.co.uk

Agustav (Ágústa Magnúsdóttir og Gústav Jóhannsson) www.agustav.com

Doppelganger (Guðrún Lárusdóttir og Ragna Fróða) www.doppelgangercollection.com

Guðný Hafsteinsdóttir www.gudnyhaf.is

Sýningarstjórar: Carol Sinclair og Pamela Conacher 

Sýningin stóð yfir í mánuð eða til 22. apríl. 

Nánari upplýsingar um samstarfið má finna hér

Dags: 22.03 - 22.04 2017
Staðsetning: Gallerí Grótta