Huggulegt líf með Lúka

Sýning í Gallerí Gróttu.

20. maí - 5. júní 2021

Huggulegt líf með Lúka - Línan Huggulegt líf er hönnun Brynhildar Þórðardóttur og snýst um notalegt andrúmsloft, innri ró og frið. Um er að ræða umhverfisvænan og sjálfbæran húsbúnað. Vörurnar eru framleiddar úr náttúrulegum hráefnum á borð við birki, eik, ull og pappír en einnig stáli, steypu og gleri. Unnið er með róandi liti þar sem brúnir tónar eru ríkjandi ásamt rauðum, gulum, bláum og gráum.
 
Brynhildur Þórðardóttir er með BA Í textíl- og fatahönnun frá Listaháskóla Íslands og með meistaragráðu í tæknilegum textílum og atgervisfatnaði. Hún hefur unnið sem sjálfstætt starfandi fatahönnuður fyrir ZO-ON og Varma og sem búningahönnuður fyrir Poppoli kvikmyndagerð. Brynhildur hefur verið tilnefnd til Edduverðlaunanna fyrir verk sín. Hún rekur í dag hönnunarfyrirtækið Lúka Art & Design.