Lára Gunnarsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2014

Handgerðir smáfuglar úr birki.
Handgerðir smáfuglar úr birki.

Lára Gunnarsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2014 á sýningunni Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Skúlaverðlaunin 2014 hlaut Lára Gunnarsdóttir fyrir handgerða smáfugla úr birki. Lára er ein af okkar fremstu listhandverksmönnum og hefur starfað í mörg ár. Hún er með mjög skemmtilegan og persónulegan stíl og vinnur eingöngu úr tré og þá oftast úr íslensku birki. Auk verðlaunanna var veitt ein viðurkenning en hana hlaut Ólöf Erla Bjarnadóttir leirlistamaður fyrir verkið „Möttulkvika“ sem er kökudiskur á fæti.
Verðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og var það Almar Guðmundsson framkvæmdastjóri sem afhenti verðlaunin í lok opnardags sýningarinnar.
Þeir sem valdir voru til þátttöku í sýningunni nú í nóvember gátu tilkynnt til HANDVERKS OG HÖNNUNAR nýja vöru í verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn. Skilyrðin voru að hlutirnir máttu hvorki hafa verið sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna í Ráðhúsinu. Um tuttugu tillögur bárust og faglega valnefnd skipuðu Edda Bergsteinsdóttir gullsmiður og Guðný Hafsteinsdóttir leirlistamaður valdi verðlaunahafa.
Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík.

Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins