Upplýsingar 2018

H A N D V E R K
O G  H Ö N N U N

í Ráðhúsi Reykjavíkur

22.-26. nóvember 2018

 

HANDVERK OG HÖNNUN heldur sýningu á handverki, hönnun og listiðnaði í Ráðhúsi Reykjavíkur í nóvember 2018. 

UMSÓKNAREYÐUBLAÐ

Sýningin stendur í fimm daga og er aðgangur ókeypis.

Opnunartími: 

Fimmtudagur 22. nóvember 16 - 19
Föstudagur 23. nóvember kl. 11-18
Laugardagur 24. nóember kl. 11-18
Sunnudagur 25. nóvember kl. 11-18
Mánudagur 26. nóvember kl. 11-18

Upplýsingar: 

  • Öllum sem vinna við handverk, listiðnað og hönnun er heimilt að sækja um þátttöku á sýningunni.
  • Sérstök fagleg valnefnd leggur mat á umsóknirnar og velur þátttakendur og er ný valnefnd er skipuð fyrir hverja sýningu.
  • Mikilvægt er að sýningin endurspegli fjölbreytt úrval og mun valnefnd hafa það í huga þegar þátttakendur eru valdir.
  • Mikilvægt er að þeir sem hafa áður tekið þátt í sýningunni taki fram í umsókn ef þeir ætla að kynna nýjar vörur.
  • Mikilvægt er að allir sem áhuga hafa á þátttöku geri ráð fyrir að vera sem mest á staðnum sjálfir. Eitt af markmiðum þessarar sýningar er að gestir hitti fólkið á bak við hlutina.

Kostnaður:

Þátttökugjald vegna sýningar í Ráðhúsi Reykjavíkur í nóvember 2018 er kr. 89.000 fyrir hverja einingu með borði en kr. 81.000 án borðs.

Innifalið í þátttökugjaldinu er:

  • Kynningaraðstaða í Ráðhúsi Reykjavíkur í fimm daga, nafnamerking, veggir og lýsing.  Barmmerki fyrir sýnendur og aðstoðarfólk.
  • Kynning á heimasíðu með myndum. Heimasíðan verður áfram opin að sýningunni lokinni.
  • Umfangsmikil kynning/auglýsing á sýningunni.

Vinsamlegast vandið útfyllingu á sérstöku rafrænu eyðublaði.

Umsóknir um þátttöku verða að berast í síðasta lagi 24. ágúst 2018
Gert er ráð fyrir að niðurstaða valnefndar muni liggja fyrir 5. september 2018.

Nánari upplýsingar á skrifstofu HANDVERKS OG HÖNNUNAR sem er opin alla virka daga frá kl. 9-16, s. 551 7595 og 899 7495.

Með kveðju,

Sunneva Hafsteinsdóttir sunneva@handverkoghonnun.is

Fjóla Guðmundsdóttir fjola@handverkoghonnun.is