Upplýsingar 2023

H A N D V E R K
O G H Ö N N U N

í Ráðhúsi Reykjavíkur

16.-20. nóvember 2023

 

 UMSÓKNAREYÐUBLAÐ

 

Umsóknarfrestur rennur út 15. september 2023

HANDVERK OG HÖNNUN heldur sýningu á handverki, hönnun og listiðnaði í Ráðhúsi Reykjavíkur í nóvember 2023.

Sýningin stendur í fimm daga og er aðgangur ókeypis.

Opnunartími:

Fimmtudagur 16. nóvember kl. 16-19
Föstudagur 17. nóvember kl. 12-18
Laugardagur 18. nóember kl. 12-18
Sunnudagur 19. nóvember kl. 12-18
Mánudagur 20. nóvember kl. 12-18

Upplýsingar:

    • Öllum sem vinna við handverk, listiðnað og hönnun er heimilt að sækja um þátttöku á sýningunni.
    • Sérstök fagleg valnefnd leggur mat á umsóknirnar og velur þátttakendur og er ný valnefnd er skipuð fyrir hverja sýningu.
    • Mikilvægt er að sýningin endurspegli fjölbreytt úrval og mun valnefnd hafa það í huga þegar þátttakendur eru valdir.
    • Mikilvægt er að þeir sem hafa oft tekið þátt í sýningunni láti vita ef þeir ætla að kynna nýjar vörur.
    • Mikilvægt er að allir sem áhuga hafa á þátttöku geri ráð fyrir að vera sem mest á staðnum sjálfir. Eitt af markmiðum þessarar sýningar er að gestir hitti fólkið á bak við hlutina.

 

Kostnaður:

Þátttökugjald vegna sýningar í Ráðhúsi Reykjavíkur í nóvember 2023 er kr. 98.000 fyrir hverja einingu með borði en kr. 85.000 án borðs.

Innifalið í þátttökugjaldinu er:

  • Kynningaraðstaða í Ráðhúsi Reykjavíkur í 5 daga, nafnamerking, veggir og lýsing. Barmmerki fyrir sýnendur og aðstoðarfólk.
  • Rafrænn bæklingur (sambærilegur við bæklingana 2019 og 2022)
  • Kynning á heimasíðu með myndum. Heimasíðan verður áfram opin að sýningunni lokinni.
  • Umfangsmikil kynning á sýningunni.
  • Ýmis önnur þjónusta við þátttakendur.

______________________________________________________________________

Niðurstaða valnefndar mun liggja fyrir í lok september 2023.