VELTIBOLLAR Í 30 ÁR

Verið hjartanlega velkomin á sýninguna VELTIBOLLAR Í 30 ÁR þar sem nýjasta lína Ingu Elínar verður kynnt, en bollarnir hafa vakið mikla athygli að undanförnu bæði hér heima og erlendis.
Inga Elín hélt sína fyrstu einkasýningu hjá Eyjólfi í Epal árið 1989 þegar hún kom úr námi frá Danish Design School í Kaupmannahöfn. Þar hlaut hún verðlaun Margrétar Danadrottningar fyrir frammistöðu sína við skólann. 
Á viðburðinum verður margvíslegt notagildi bollana sýnt, sem hafa aðallega verið notaðir sem kaffibollar fram að þessu. Nýlega voru bollarnir kynntir á viðburði Soho House í New York þar sem var boðið upp á kokteila í þeim og vakti það mikla lukku gesta.

Boðið verður uppá léttar veitingar á viðburðinum sem verður haldinn í Epal Skeifunni föstudaginn 15. nóv. frá kl. 15 til 18.

Viðburðurinn á Facebook