Treflar og sjöl – 4 vikna vefnaðarnámskeið

VEFNAÐUR

Treflar og sjöl – 4 vikna námskeið 

Unnið er með fínan þráð úr ull, hör og krepull í treflum og sjölum. Með samsetningu tveggja þráða í vefinn er hægt að fá undraverða áferð á efnið. Í fyrsta tíma hittast nemendur á vinnustofu kennara og velja efni og eina gerð vefnaðar (námskeiðið fer að öðru leyti fram í vefstofu Heimilisðnaðarskólans í Nethyl 2e). Í vefstofunni setja nemendur upp í tvö stykki en með ólíku litavali fást tveir ólíkir hlutir. Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem og lengra komnum.

Kennari: Guðrún Kolbeins.

Lengd námskeiðs: 7 skipti = 36 klst.

Tími: sun. 31. mars kl. 10-12 (á vinnustofu kennara), 1., 2., 6., 8., 13., 15.  apríl, mán. og þri. kl. 18 - 21 og lau. kl. 9 - 15. Nemendur hittast eftir páska í samráði við kennara vegna frágangs verka - kennsla fer fram í vefstofu í Nethyl 2e.

Námskeiðsgjald: 91.800 kr. (82.620 kr. fyrir félagsmenn) - Vefjarefni er ekki innifalið.

Staðsetning: Nethylur 2e

Skráning: skoli@heimilisidnadur.is eða í síma 551 5500.