Teikn

Leiðsögn listamanns og sýningarstjóra sunnudaginn 10. mars kl. 15 um sýningu á verkum Guðjóns Ketilssonar sem ber heitið TEIKN.

Í Listasafni Reykjanesbæjar stendur yfir einkasýning á verkum Guðjóns Ketilssonar myndlistarmanns. Sýningin nefnist „Teikn“ og er samsett úr 8 verkum sem öll fjalla með einum eða öðrum hætti um tákn, táknmerkingu og „lestur“ í víðasta skilningi þessara orða. Listamaðurinn hefur unnið jöfnum höndum að gerð þrívíddarverka og teikninga eins og sjá má á sýningunni. Verk hans eru hvorttveggja í senn völundarsmíði og hugleiðingar um tilvist manns, þau spor sem hann markar sér í raunheimi með gjörðum sínum og þær aðferðir sem hann notar til að gera sig skiljanlegan í menningarlegu nærumhverfi sínu. Mörg helstu verka Guðjóns eru uppfull af vísbendingum, táknum og tilvitnunum sem mynda eins konar huglæg rými sem áhorfandinn gerist þátttakandi í og upplifir á eigin skinni. Verkin á sýningunni „Teikn“ eru einmitt þess eðlis.

Guðjón er með allra markverðustu myndlistarmönnum þjóðarinnar og hefur haldið yfir þrjátíu einkasýningar og tekið þátt í samsýningum um allan heim. Hann hefur hlotið margar opinberar viðurkenningar og gert verk sem finna má í á opnum svæðum á ýmsum stöðum. Hann tók m.a. þátt í samsýningunni „Þríviður“ í Listasafni Reykjanesbæjar árið 2008, en sú sýning var kjörin ein af bestu listsýningum þess árs af fjölmiðlum. Verk hans er að finna í öllum helstu listasöfnum landsins. Er okkur það mikil ánægja og heiður að fá hann með verk sín hingað suður í Reykjanesbæ og vil ég þakka honum frábært samstarf.  Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, en auk hans ritar skáldið Sjón hugleiðingu um „fundið myndletur“ Guðjóns í sýningarskrána þar sem Sjón grennslast fyrir um hugsanlegan boðskap þess og er þeim báðum þakkað þeirra framlag.

Sýningin stendur til 22. apríl 2019.

Sjá nánar um sýninguna hér