Styttist í HönnunarMars 2020

HönnunarMars 2020 átti að fara fram í lok marsmánaðar eins og undanfarin ellefu ár, en vegna Covid-19 faraldursins var hátíðinni frestað til 24.-28. júní. Stjórnendur hátíðarinnar hafa síðan þá fylgst grannt með öllum vendingum er varða samkomubann, fjöldatakmarkanir, möguleika á ferðalögum til og frá landinu og breytt áætlunum um hátíðina jafnóðum eftir því sem fréttir berast. Í kjölfar jákvæðra frétta er nú ljóst að hátíðin mun fara fram, en með breyttu sniði.

Dagskrá HönnunarMars 2020 er að taka á sig mynd og ljóst að hún verður einstaklega fjölbreytt og forvitnileg í ár. Öll áhersla verður lögð á sýningar og sýnendur og um leið upplifun og öryggi gesta. Unnið verður að því að miðla sýningum og innihaldi þeirra hér á landi og erlendis m.a. í samstarfi við Íslandsstofu. Að gefnu tilefni munu stórir og mannmargir viðburðir sem hafa verið fastir liðir hátíðarinnar eins og opnunarhóf, DesignTalks, DesignDiplomacy og DesignMatch bíða til ársins 2021.

HönnunarMars er boðberi bjartsýni og skapandi krafta í samfélaginu. Nú gefst tækifæri til að beina sjónum að hönnun sem drifkraft til nýsköpunar og sýna hversu mikilvægu hlutverki þessar greinar gegna í samfélaginu, á þeim óvissutímum sem við lifum nú. Sem ein af sex borgarhátíðum Reykjavíkur standa vonir til að hátíðin í lok júni veiti íbúum og gestum borgarinnar innblástur og gleði í sumar.

„Við viljum nýta tækifærið til að vekja athygli á mikilvægi skapandi hugsunar á krefjandi tímum.“ (Þórey Einarsdóttir, stjórnandi HönnunarMars) 

Hægt er að fylgjast með dagskránni taka á sig mynd á heimasíðu HönnunarMars hér og á samfélagsmiðlum hátíðarinnar - @designmarch - en þar mun allt iða af lífi og hönnun miðlað í fjölbreyttu formi!