ShiftED

Á HönnunarMars  2018 verður sýningin ShiftED opnuð í Aðalstræti 10.

Á sýningunni eru ný samvinnuverk 11 skoskra og íslenskra hönnuða sem hittust fyrst á HönnunarMars 2017. Síðan þá hafa þeir skipst á hugmyndum og unnið saman að verkum sem nú verða sýnd.

Tilgangur verkefnisins SHIFT er að gefa ólíkum hönnuðunum kost á faglegu samtali og útbúa farveg þar sem þeir geta veitt hver öðrum innblástur. Fyrsta sýningarverkefni hópsins var á HönnunarMars í fyrra en í júní 2017 sýndi hópurinn svo á XPONorth  í Skotlandi.

Samstarfsverkefnið er í senn vettvangur fyrir ferskar hugmyndir og nýja nálgun í skapandi framleiðslu. Því er einnig ætlað að efla og búa til tengingar við nýja markhópa og stuðla að nánari tengslum milli landanna.

Skoskir hönnuðir

Diggory Brown / Netty Sopata, fatahönnun

Julia Smith keramik

Yellow Broom Clare Waddell og Dave Robson, ljóshönnun

Lucy Woodley skúlptúr

Jen Deschenes  textíll

Íslenskir hönnuðir

Agustav / Ágústa Magnúsdóttir og Gústav Jóhannsson, húsgagnahönnun

Arndís Jóhannsdóttir/ Dísa, söðulsmiður og hönnuður

Guðný Hafsteinsdóttir keramik

Ýr Jóhannsdóttir textíll

Sýningarstjórar eru Carol Sinclair og Pamela Conacher

Shift er verkefni sem unnið er í samstarfi skosku samtakanna Emergents og HANDVERKS OG HÖNNUNAR á Íslandi.

Opnunartími:

Fimmtudag 15. mars kl. 18-20
Föstudag 16. mars kl. 12-20
Laugardag 17. mars kl. 12-17
Sunnudag 18. mars kl. 12-17

Upplýsingar um viðburðinn á Facebook