Safnið á röngunni - skráning á keramiksafni

SAFNIÐ Á RÖNGUNNI
Skráning á keramiksafni

Anna Eyjólfsdóttir myndlistarmaður hóf söfnun á leirmunum eftir íslenska listamenn árið 1979.
Árið 2017 samanstóð safnið af tæplega 2000 gripum, sem spanna tímabilið frá 1932 til dagsins í dag. Þetta er stærsta einstaka keramíksafn landsins. Hönnunarsafn Íslands eignaðist það með styrk frá Bláa Lóninu.

Næstu mánuði mun starfsfólk Hönnunarsafns Íslands ásamt ýmsum góðum gestum skrásetja keramíkgripina í sýningarsal safnsins, en skráning er viðamikill hluti af starfsemi safna. Hér geta gestir fylgst með þegar hlutir eru teknir upp úr kössum, ljósmyndaðir, skráðir í safnmunaskrá og þeim loks pakkað eftir kúnstarinnar reglum. Markmiðið er að hluturinn varðveitist en sé um leið aðgengilegur ásamt þeim upplýsingum sem til eru um hann.

Skráning er spennandi ferli sem víkkar sjóndeildarhringinn, kveikir neista og tengingar, hugmyndir, samtöl og minningar.

Sjá nánar á vef Hönnunarsafns Íslands