Rætur og flækjur

Sýning á verkum Guðrúnar Gunnarsdóttur

Borgarbókasafnið  | Menningarhús Spönginni
22. mars - 30. apríl 2018

Guðrún Gunnarsdóttir hefur verið starfandi myndlistarmaður og hönnuður í yfir 40 ár. Bakgrunnur hennar er í textíl og hefur hún unnið og dvalið víðsvegar um heim við listsköpun.

Vefstólinn nýtir Guðrún ekki lengur heldur notar hún þráðinn beint, mótar hann í höndum og gerir að skúlptúrum sem hún kallar þrívíddarteikngar. Þráðurinn er oftast vír, en einnig notar Guðrún á þessari sýningu hrosshár, plast, garn, pappír og þurrkaðar jurtarætur. Einnig eru útsaumsverk á sýningunni. Í verkum Guðrúnar má oft finna tengingu við gamalt handverk. Verkin eru unnin í rýmið í Spönginni, eru leikur með línur og skugga og tengsl við náttúru og menningu. Öllu er skákað saman til að ná fram  spennu og því sem svo oft er mikilvægt í upplifun, hrárri fegurð hins smáa. Óreiða og flækjur sem hægt er að tengja við dulúð og ljóð. Verkin eru flest unnin á árunum 2017-2018.

Guðrún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hérlendis sem erlendis. 

Hér má nálgast frekari upplýsingar um listakonuna.