Opið fyrir umsóknir í Jólaþorpið

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Jólaþorpið á Thorsplani í Hafnarfirði 2018. Sem fyrr vill Jólaþorpið fá til liðs við sig einstaklinga, samtök og fyrirtæki sem hafa til sölu gæðavöru á góðu verði og fjölbreytt úrval varnings með loforði um líf og jólafjör á á sölubásnum.

Í Jólaþorpinu verða um 20 skreytt einingahús sem eru 5,8 m2 að stærð. Góð aðsókn hefur verið í söluhús Jólaþorps Hafnarfjarðar síðustu árin og því er valið úr innsendum umsóknum þar sem horft er sérstaklega til nokkurra þátta. Í ár opnar Jólaþorpið föstudaginn 30. nóvember og verður þá opið frá kl. 17:00 - 20:00.  Eftirleiðis verður opið alla aðventuna á laugardögum og sunnudögum frá kl. 12-17 og til kl. 22 á Þorláksmessu. Leigugjald á söluhúsi er kr. 15.000.- fyrir helgina. Innifalið í leigugjaldi er allur kostnaður við uppsetningu og rekstur húss og þrif á svæðinu. Að auki mun Hafnarfjarðarbær sjá um að kynna Jólaþorpið með ýmsum hætti, s.s. útvarps-, skjá og blaðaauglýsingum og laða gesti að með skemmtidagskrá. 

Söluaðilar þurfa að uppfylla lög og reglur sem um það kunna að gilda hvað sölumuni varðar. Sé vara eða vöruflokkur skilyrtur á einhvern hátt eða háður veitingu leyfa ber söluaðila að kynna sér það og afla viðkomandi leyfa. Á þetta við t.d. sölu matvæla, drykkjar, áfengra drykkja og annarar vöru sem er mögulega eftirlitsskyld. Söluaðilar eru hvattir til að kynna sér einnig hvort og hvaða tryggingar kunni að vera hentugar eigi það við. Staðsetning jólahúsa fer eftir heildarásýnd þorpsins og hvað hentar helst í því skyni. 

Umsækjendur þurfa að skila inn umsóknum fyrir 15. október 2018 á www.hafnarfjordur.is/jolathorp eða fyrir 15. nóvember þegar seinni úthlutun fer fram. Hægt er að senda fyrirspurnir á netfangið: jolathorp@hafnarfjordur.is