Námskeið á vorönn - Heimilisiðnaðarskólinn

Spennandi handverksnámskeið

Heimilisiðnaðarskólinn  Nethyl 2e í Reykjavík hefur um árabil haldið spennandi handverksnámskeið. Námskeiðin eru blanda af þjóðlegum námskeiðum og spennandi nýjungum og vara allt frá einni kvöldstund upp í tólf vikur.

Vefnaður, orkering, þjóðbúningasaumur, prjón, körfuvefnaður, sápugerð, sólarlitun, vattarsaumur, tóvinna, útsaumur, hekl, baldýring, prjón og jurtalitun eru á meðal námskeiða. Upplýsingar um námskeiðin má nálgast hér en námskeiðsbæklinginn í heild sinni á pdf-formi má nálgast hér.

Námskeiðskynning þar sem kennarar og sýnishorn verða á staðnum verður haldinn í Nethyl 2e fimmtudagskvöldið 11. jan. kl. 20.

Skráning fer fram á netfangið skoli@heimilisidnadur.is eða í síma 551 5500. Skráningu þarf að fylgja heiti námskeiðs, nafn þátttakanda, kennitala, símanúmer og netfang. Krafa fyrir námskeiðsgjöldum er birt í heimabanka nema annars sé óskað.