Laust pláss í Skúmaskoti

Laust pláss í Skúmaskoti 

Skúmaskot er hönnunar og listagllerí á Skólavörðustíg 21a, sem er rekið í sameiningu af níu listakonum og hönnuðum. Fjölbreytnin ræður ríkjum og nú er hægt að bæta við nýju fólki. Lögð er áhersla á að í framboði í galleríinu sé aðeins vönduð vara sem gerð er á Íslandi í takmörkuðu upplagi. 

Þeir sem hafa áhuga á að slást í hópinn geta sent tölvupóst með upplýsingum á : skumaskot23@gmail.com 

Sjá Skúmaskot á facebook