Kynningartilboð: Íslenska lopapeysan - uppruni, saga og hönnun

Út er komin bókin Íslenska lopapeysan – uppruni, saga og hönnun eftir Ásdísi Jóelsdóttur

Íslenska lopapeysan – uppruni, saga og hönnun byggir á víðtækri rannsókn á rituðum heimildum, ljósmyndum og viðtölum við fjölda aðila. Um er að ræða ritrýnda útgáfu og er það í fyrsta skipti sem gefið er út ritrýnt fræðirit í textílgreininni. Höfundur bókarinnar, Ásdís Jóelsdóttir, er lektor í textíl við menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Bókin, sem er 300 blaðsíður, er ríkulega myndskreytt og tilvalin gjafabók auk þess sem henni fylgir úrdráttur á ensku.
Íslenska lopapeysan hefur fest sig í sessi sem mikilvæg tísku- og minjavara enda séríslensk frumhönnun sem mótast hefur í samvinnu margra aðila og á uppruni hennar sér dýpri rætur í prjóna- og munstursögu þjóðarinnar en löngum hefur verið talið.
Saga hennar er einnig mikilvægur hluti af handverks-, hönnunar-, atvinnu-, iðnaðar- og útflutningssögu þjóðarinnar og er markmiðið með bókinni að varðveita þá sögu.
Til að panta eintak í forsölu, vinsamlega sendið pöntun á styrmir@hi.is. Fram þarf að koma nafn og kennitala greiðanda. Eintakið verður sent til viðkomandi og krafa stofnuð í heimabanka greiðanda.
TILBOÐSVERÐ MEÐ HEIMSENDINGU ER KR. 5.900