Jólahelgin í glerverkstæðinu

Gler í Bergvík heldur sína árlegu jólasölu á Kjalarnesi fyrstu helgina í desember. 

Til sölu verða fjölbreyttir glerlistmunir ásamt nytjavörum á lækkuðu verði. 
"Annars flokks" vörur verða á allt að 50% afslætti.
Allar aðrar vörur á 15% afslætti.

Jólabasar Gler í Bergvík hefur verið haldinn árlega frá stofnun verkstæðsins þar sem hugguleg jólastemning fyrir fjölskyldu og vini hefur ávallt ráðið ríkjum. 

Tilvalið tækifæri til að setja íslenskt handverk í jólapakkann eða gleðja heimilið með íslenskri hönnun! 

OPNUNARTÍMI:
Laugardagur 2. des - 10:00 - 17:00
Sunnudagur 3. des - 10:00 - 17:00

Verkstæðið er staðsett milli Klébergsskóla og Grundarhverfis 

Hægt er að greiða með korti og reiðufé. 
Allir velkomnir!

Sjá nánar hér