JÖKULL – JÖKULL

STEINUNN MARTEINSDÓTTIR / JÖKULL – JÖKULL

Steinunn Marteinsdóttir heldur sýningu í Listasal Mosfellsbæjar í tilefni 85 ára afmælis síns 18. febrúar. Hún hefur unnið að myndlist í marga áratugi og er einn helsti leirlistarmaður landsins. Steinunn hefur síðustu ár lagt stund á málun í vaxandi mæli.

Sýning Steinunnar í Listasal Mosfellsbæjar nefnist JÖKULL – JÖKULL og er þetta yfirlitssýning af jöklamyndum sem listakonan málaði á árunum 1986-2019. Jökullinn, ekki síst Snæfellsjökull, hefur lengi verið sterkt þema í verkum Steinunnar. Í sýningarskrá stendur að jökullinn sé Steinunni einskonar aflvaki og kjölfesta í listsköpun; tákn um þrá, ákall og markmið.

Fyrsti sýningardagur er föstudagurinn 12. febrúar og lýkur sýningunni 12. mars.

Listasalur Mosfellsbæjar er staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar. Hann er opinn kl. 12-18 á virkum dögum og kl. 12-16 á laugardögum. Bent er á að ekki verður formleg opnun vegna Covid-19.