Jarðsögur

JARÐSÖGUR

Verið hjartanlega velkomin á sýningu Auðar Vésteinsdóttur, Elísabetar Haraldsdóttur og Sigríðar Ágústsdóttur, Jarðsögur, í Gallerí Gróttu.

Listakonurnar eiga það sameiginlegt að nýta sér miðla handverks og nytjalistar við sköpun einstakra listaverka með aðferðum leirlistar og listvefnaðar. Allar eiga þær að baki langan listferil og búa yfir áralangri reynslu og þekkingu á efniviðnum og möguleikum hans. Listakonurnar segja sögur með náttúrulegum efnivið eins og ull, hör, jarðleir og postulíni, sem hefur vísun í jörð, náttúru og landslag. Líkt og í náttúrunni geta óvæntir hlutir gerst í vinnuferlinu og útkoman er ekki alltaf fyrirséð. Fyrirbæri náttúrunnar samlagast efninu í myndvefnaði Auðar og leirverkum Elísabetar og Sigríðar þar til fullkomið samband næst milli hugar og handar.
Sýningarstjóri er Aðalheiður Valgeirsdóttir.

Sýningin verður opin mán. - fim. kl. 10-18:30 - föstudaga 10-17 og laugardaga 11-14. Lokað á sunnudögum.

Sýningin stendur til 13. febrúar 2021

Sýningin stýrist af þeim takmörkunum sem Covid-19 setur.  Ekki er boðið upp á veitingar.
Gestir eru beðnir um að virða grímuskyldu og viðhafa 2ja metra reglu.