Íslenska lopapeysan

Íslenska lopapeysan – uppruni, saga og hönnun.

Sýning í Hönnunarsafni Íslands. Sýningin byggir á rannsókn Ásdísar Jóelsdóttur og hönnuður sýningarinnar er Auður Ösp Guðmundsdóttir.

Ásdís Jóelsdóttir verður með leiðsögn um sýninguna, Íslenska lopapeysan, uppruni, saga og hönnun, laugardaginn 13. janúar kl. 16.00 

Íslenska lopapeysan þróaðist frá því að vera vinnufatnaður sem nýttist aðallega við erfið útistörf í það að verða að þjóðlegri minjavöru og vinsælli tískuvöru. Þannig endurspeglar peysan lífshætti og sögu þjóðar. Engin ein prjónakona „hannaði“ peysuna heldur hefur útlit hennar og gerð tengst mörgum áhrifavöldum og ekki síst því að hún þurfti að vera fljótprjónuð. Íslenskar prjónakonur hafa átt veg og vanda af þessari þróun. Þjálfun og reynsla, formskynjun í munsturgerð, næmni fyrir litum og litasamsetningum ásamt ánægjunni af því að prjóna hefur verið undirstaða í hönnun lopapeysunnar.

Sýningin stendur til 28. feb. 2018 og er farandsýning.

Sýningin er samstarfsverkefni Hönnunarsafns Íslands, Heimilisiðnaðarsafnsins  og Gljúfrasteins.