Íslensk-ameríska félagið auglýsir styrki fyrir sumarnámskeið við Haystack Mountain School of Crafts

Menningarsjóður Pamelu Sanders Brement og Íslensk-ameríska félagið auglýsa til umsóknar styrki fyrir listafólk til að sækja sumarnámskeið við Haystack Mountain School of Crafts í Maine. 

Tveir styrkir eru í boði að upphæð $ 3.500 hvor.  Frekari upplýsingar um námskeiðin og kennslugreinar má finna á heimasíðu skólans á www.haystack-mtn.org 

Umsóknir skulu sendar inn á ensku.  Til að sækja um Haystack styrkinn þarf að leggja inn eftirfarandi gögn:

  1. Útfyllta umsókn á ensku
  2. Ferliskrá þar sem fram koma upplýsingar um heimilsfang, símanúmer, netfang og heimasíðu ef við á
  3. Yfirlýsing um listrænar áherslur
  4. Lýsing á reynslu og færni í listgreininni sem námskeiðið fjallar um
  5. Afrit af prófskírteini úr háskólanámi ef við á
  6. Tvö meðmælabréf
  7. Sýnishorn af verkum umsækjanda, nánar tiltekið 10 ljósmyndir með útskýringum (í einu pdf skjali sem er ekki stærra en 2 MB).

Umsóknareyðublöð má sækja á www.iceam.is þar sem almennar upplýsingar koma einnig fram. Umsækjendur skulu tilgreina á umsókn hvaða námskeið þeir hafa hug á að sækja. 

Umsóknir skulu sendar á netfang iceam@iceam.is eigi síðar en 5. febrúar 2017.