Íslensk-ameríska félagið auglýsir styrki

Menningarsjóður Pamelu Sanders Brement og Íslenskameríska félagið auglýsa til umsóknar styrki fyrir listafólk til að sækja sumarnámskeið við Haystack Mountain School of Crafts í Maine.
Tveir styrkir eru í boði að upphæð $ 3.500 hvor.
Frekari upplýsingar um námskeiðin og kennslugreinar má finna á heimasíðu skólans á www.haystack-mtn.org

Umsóknir skulu sendar inn á ensku. Til að sækja um Haystack styrkinn þarf að leggja inn eftirfarandi gögn:
1. Útfyllta umsókn á ensku
2. Ferliskrá þar sem fram koma upplýsingar um heimilsfang, símanúmer, netfang og heimasíðu ef við á
3. Yfirlýsing um listrænar áherslur
4. Lýsing á reynslu og færni í listgreininni sem námskeiðið fjallar um
5. Afrit af prófskírteini úr háskólanámi ef við á
6. Tvö meðmælabréf
7. Sýnishorn af verkum umsækjanda, nánar tiltekið 10 ljósmyndir með útskýringum (í einu pdf skjali sem er ekki stærra en 2 MB).

Umsóknareyðublöð má sækja á www.iceam.is þar sem almennar upplýsingar koma einnig fram. Umsækjendur skulu tilgreina á umsókn hvaða námskeið þeir hafa hug á að sækja.

Umsóknir skulu sendar á netfang iceam@iceam.is eigi síðar en 5. febrúar 2018.