Indígó: Umhverfisvænar þrykk- og litunaraðferðir á textíl

Vilt þú læra umhverfisvæna leið til þess að þrykkja á og lita textíl?

Dagana 24.-26. maí verða Catherine Ellis og Joy Boutrup með námskeið þar sem farið verður yfir nýjar þrykk- og litunaraðferðir með indígó í Myndlistaskólanum í Reykjavík.
Á þessu þriggja daga námskeiði fá nemendur tækifæri til að búa til lífrænt indigo-bað, þrykkja hjúpþrykk og síðan lita efnin með indigo, nota indigo í beint þrykk á plöntutrefjaefni og þrykkja ætingu á indígólitað efni. Einnig verða efni jurtalituð til að auka litavalið.
Best er að nota litla þrykkramma, stimpla og stensla og vinna á plöntutrefjaefni (t.d. bómull, hör).
Kennt verður föstudaginn 24. maí kl. 14-18, laugardaginn 25. maí og sunnudaginn 26. maí kl. 10-16.

Skráning og frekari upplýsingar á vef Myndlistarskólans og á Facebook.