Handverksnámskeið í Eistlandi sumarið 2017

Kynningarfundur laugardaginn 18. febrúar.

Handverksnámskeið  9. – 15. júlí 2017 í Olustvere, Eistlandi.

Í sumar verða haldnar spennandi námskeið í Eistlandi fyrir handverksfólk. Kynningarfundur  verður hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands Nethyl 2e laugardaginn 18. febrúar kl. 14. Á fundinum verða sýndar myndir frá íslenskum þátttakenda sem tók þátt í samskonar handverksbúðum síðastliðið sumar. Þegar hafa nokkrar íslendingar ákveðið taka þátt þetta árið og veita þeir ráðleggingar varðandi flug og ferðir til Eistlands.

Handverksnámskeið í Eistlandi sumarið 2017

Dagana 9. – 15. júlí 2017 verða haldin spennandi handverksnámskeið í Olustvere í Eistlandi. Boðið er upp á námskeið í þjóðlegu eistnesku handverki en þátttakendur koma hvaðanæva að.  Það er háskólinn í Tartu sem skipuleggur námskeiðin með menningu og hefðir Eistlands að leiðarljósi.

Til kennslu á námskeiðunum er leitað til handverksfólk og listamanna víða úr heiminum. Hver kennari er sérfræðingur á sínu sviði. Nálgast má upplýsinagr um námskeiðin sem henta bæði byrjendum og lengra komnum. Á meðal þess sem boðið er upp er prjón, hekl, saumar, útsaumur, málun, litun, keramik, gler, silfur, barkarvinna, bein og trevinna. Sjá nánar hér: http://www.kultuur.ut.ee/en/craft-camp/ws.

Snemmskráning er til 31. mars (lægra gjald) en síðasti skráningarfrestur er 15. maí. Skráningin fer fram í tveimur þrepum – gætið þess að fylla fyrst út skref eitt og síðan skref tvö. Verið viss um að fylla út bæði skref þar sem í seinna skrefi þarf að gefa upplýsingar um hvaða námskeið eru valin, dagsferðatilboð, gistingu o.fl.

Nánari upplýsingarnar um námskeiðin má finna á eftirfarandi miðlum Ravelry, Facebook, Vimeo og heimasíðu.