Handverkshátíðin 2018

Handverkshátíðin - 9.-12. ágúst 2018

Handverkshátíðin verður nú haldin í 26. sinn. Um 100 hönnuðir og handverksfólk selja fatnað, keramik, snyrtivörur, textílvörur og skart sem oftar en ekki er unnið úr rammíslensku hráefni. Á útisvæðinu er hægt að bragða á og kaupa góðgæti frá Beint frá býli auk fjölda annarra aðila. Ýmsar uppákomur eru í boði alla dagana s.s. sýning á gömlum traktorum og miðaldabúðir. 
Handverkshátíðin er haldin í Hrafnagilsskóla 10 km sunnan við Akureyri.

Opið fimmtudag, föstudag og laugardag kl.12-19 og sunnudag kl. 12-18.

Upplýsingar um viðburði og dagskrá hátíðarinnar má finna á heimsíðu, fésbókarsíðu Handverkshátiðar og Instagram.

Nánari upplýsingar er hægt að fá á handverk@esveit.is