Guðný Hafsteinsdóttir hlaut Skúlaverðlaunin 2018

ljósmynd: Guðmundur Ingólfsson
ljósmynd: Guðmundur Ingólfsson

Skúlaverðlaunin 2018 voru afhent í dag á sýningunni Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Guðrún Birna Jörgensen, Guðný Hafsteinsdóttir og Sunneva Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar Skúlaverðlaunin 2018 voru afhent í dag, íl ok fyrsta opnunardags sýningarinnar Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur. Verðlaunin hlaut Guðný Hafsteinsdóttir keramiker og hönnuður sem hannar undir merkinu Gudnyhaf. Verðlaunin hlaut hún fyrir tappa í flöskur sem kallast "Beware" og eru ísbjarnarhöfuð úr steyptu postulíni. Tapparnir eru kónískir og ganga því í alls konar flöskur.

Um hugmyndina að Beware segir Guðný: „Hugmyndin að baki var að gera dýr sem eiga það sameiginlegt að vera ógnvænleg en er einnig ætlað að höfða tilfinningalega til fólks.“ Fyrsti tappinn var jólakötturinn og er hann búinn að vera í sölu undanfarin tvö ár bæði hér heima og í Danmörku og hefur verið vel tekið. Ísbjörninn er alveg nýr og er til í ýmsum litum eins og kötturinn.

Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og var það Guðrún Birna Jörgensen frá SI sem afhenti verðlaunin. 

Sýningin Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur er haldin dagana 22.-26. nóvember og eru þátttakendur 56 talsins. Þeir sem valdir voru til þátttöku í sýningunni gátu tilkynnt til HANDVERKS OG HÖNNUNAR nýja vöru í verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn.  Skilyrðin voru að hlutirnir  máttu hvorki  hafa  verið sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna í Ráðhúsinu. Tæplega tuttugu  tillögur bárust og dómnefnd skipuðu Kristín Sigfríður Garðarsdóttir keramikhönnuður og Elísabet Jónsdóttir grafískur hönnuður.

Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík. 

Skúlaverðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins Samtök iðnaðarins