Flækjur: Haustsýning Grósku 2019

Flækjur í sýningarsal Grósku, 2. hæð á Garðatorgi í Garðabæ

Opnun 14. nóvember kl. 20-23

Sýningin er opin áfram 15.-17. nóvember kl. 12-18

Skyldi nú allt vera að fara í flækju hjá Grósku, samtökum myndlistarmanna í Garðabæ? Svo er ekki en listamennirnir hafa hins vegar flækt sig rækilega í undirbúning haustsýningar Grósku sem verður opnuð fimmtudaginn 14. nóvember kl. 20-23. Þemað er að þessu sinni Flækjur og á vinnustofum listamannanna eru flókin og margbrotin listaverk að verða til.

Til að flækja ekki málin óþarflega verður sýningin þó samkvæmt venju haldin í Gróskusalnum á 2. hæð við Garðatorg, Garðabæ, og ætti ekki að flækjast fyrir neinum að finna hann. Listamennirnir verða sjálfir á staðnum og boðið er upp á ljúfar veitingar.

Sýningin verður síðan opin áfram dagana 15.-17. nóvember klukkan 12 til 18.

Fólk er hvatt til að fjölmenna og gleðjast yfir fjölbreyttum flækjum í listaverkunum. Allir eru velkomnir.

Gróska er nú á tíunda starfsári og hefur tekist að festa sig í sessi í menningarlífi Garðabæjar svo um munar. Gróska heldur jafnt upp á komu vetrar sem sumars með árstíðabundnum sýningum og stendur einnig fyrir öðrum sýningum sem eru breytilegar milli ára. Umfangsmest er Jónsmessugleði sem haldin er við Strandstíginn við Sjálandshverfið í Garðabæ en þangað streyma þúsundir gesta á hverju ári. Fyrir utan sýningahaldið stendur Gróska fyrir opnum fyrirlestrum um myndlist og menningu og haldin eru námskeið og samhristingar fyrir félagsmenn.

Tilgangur Grósku er að styrkja innra samstarf myndlistarmanna í Garðabæ ásamt því að efla og gera myndlistina sýnilegri og þar með auka myndlistaráhuga almennings í bæjarfélaginu. Starfsemin hefur borið góðan árangur og síðastliðið vor hlaut Gróska viðurkenningu á Menningaruppskeruhátíð Garðabæjar fyrir merkt framlag til menningar og lista.

Sjá nánar hér