Opið er fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð

Opið er fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð - frestur til 4. febrúar 2021

Opið er fyrir umsóknir í Hönnunarsjóð en um almenna- og ferðastyrki er að ræða. Umsóknarfrestur er til 4. febrúar og fer úthlutun fram þann 4. mars.

Hér er hægt að sækja um

Þetta er fyrsta úthlutun ársins 2021 en stjórn Hönnunarsjóðs er búin að festa dagsetningar varðandi umsóknarfresti og úthlutanir ársins.

Hægt er að sjá allar dagsetningar hér.

Hönnunarsjóður veitir styrki til margvíslegra verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs: þróunar og rannsókna, verkefna og markaðsstarfs auk ferðastyrkja.

Hlutverk Hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi en sjóðurinn er fjármagnaður af stjórnvöldum.

Hönnunarsjóður stuðlar einnig að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar með því að styrkja kynningar- og markaðsstarf erlendis.

Heimasíða Hönnunarsjóðs