Nú er hægt er að sækja um í Menningarnæturpottinn

Menningarnótt eftir nótt

Ert þú með góða hugmynd? Komdu í pottinn!

Í ár verður Menningarnótt haldin með breyttu sniði. Hátíðin dreifist yfir 10 daga og fer fram 13.-23. ágúst. Borgarbúar geta því notið hátíðarinnar dag eftir dag, nótt eftir nótt.

Auglýst er eftir frumlegum hugmyndum til að fylla inn í nýstárlegt viðburðalandslag Menningarnætur 2020.

Veittir eru styrkir á bilinu 100.000-500.000 kr.

Listafólk, íbúar, rekstraraðilar, félagasamtök og allir áhugasamir geta sótt um styrki til að lífga upp á miðborgina á þessari þátttökuhátíð sem borgarbúar skapa og upplifa saman.

Hægt er að sækja um í Menningarnæturpottinn til 3. júlí. 

Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Landsbankans sem verið hefur máttarstólpi hátíðarinnar frá upphafi.

Sjá nánar á vef Menningarnætur