GUÐJÓN KETILSSON OPNAR Í SMIÐSBÚÐINNI

Laugardaginn 5. okt. kl. 16.00 opnar myndlistarmaðurinn Guðjón Ketilsson sýningu í Smiðsbúðinni.

Smiðsbúðin er vinnustofa og verslun gullsmiðana Erlings og Helgu Óskar Einarsdóttur í gömul verbúðunum  við Geirsgötu.

Á sýningunni eru fjögur myndverk, sem öll eru myndrænar vangaveltur um sköpun, niðurbrot og endursköpun.

Í nýlegum verkum Guðjóns skipar saga þess efnis sem hann notar stóran sess og bera í sér ólíkar vísanir, sem hann brýtur gjarnan upp. Verk hans vísa inn á við, þau beina athygli okkar að efnisheiminum og hinu efnislega umhverfi okkar daglega lífs.

Guðjón Ketilsson (f. 1956) býr og starfar í Reykjavík. Hann stundaði myndlistarnám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Nova Scotia College of Art and Design í Kanada.

Sýningin verður opnin á opnunartíma verslunarinnar.

Sjá nánar um sýninguna hér