Brunnur - sýning á textílverkum eftir Rögnu Fróða

Brunnur - sýning á textílverkum eftir Rögnu Fróða stendur yfir í Listasal Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ - (Í Kjarna inn af bókasafninu).

Sýningin er opin virka daga kl. 12-18. Síðasti sýningardagur er laugardagurinn 2. sept. 

"Sýningin er innblásin af minningum um foreldra mína - um móður mína sem prjónaði út í hið óendanlega og um garðyrkju föður míns á rósabúgarði fjölskyldunnar í Mosfellsdal.

Brunnurinn er uppspretta arfleifðar minnar - ekki síst minn nærtækasti brunnur, móðurarfurinn.Textílarfur þjóðarinnar einkennist af óteljandi stundum sem aðallega konur nýttu í að vinna textíl í mörgum myndum. Annars vegar til að klæða sig og sína og hins vegar til að fegra og skreyta umhverfi sitt í leiðinni. Þetta er einn brunnur sem ég sæki mikið til. Þar er að finna áferðir, liti og litasamsetningar sem kallast á við minn eigin brunn sem ég hef búið mér til í námi og starfi gegnum árin.

Þessi blanda úr ólíkum áttum kemur auðvitað úr sama brunni – sameiginlegum brunni mannkyns þar sem reynsla og þekking ferðast á milli landa og heimsálfa. Brunnurinn snýst um jafnvægi þess gamla og þess nýja og hjálpar okkur þannig að eiga samtal við arfleifðina.
Á sýningunni mætast leikur að mynstrum og áferðum, litasamsetningar, minningar og sögubrot."

Sýningin stendur til 2. sept og er opin á opnunartíma bókasafns Mosfellsbæjar.

Nánar um viðburðinn hér