As We Grow - Smástundamarkaður

As We Grow - Smástundamarkaður í Hönnunarsafni Íslands

AS WE GROW verður með sölu á sýnishornum laugardaginn 5. október frá 12 - 17. Peysur og kjólar frá 5.000 kr., kápur frá 5.500, buxur og skyrtur frá 3.000 kr. Það verður líf í tuskunum.

Fatahönnunarmerkið AS WE GROW var handhafi Hönnunarverðlauna Íslands árið 2016. Í umsögn dómnefndar segir:

Með vörulínunni tvinna eigendur As We Grow saman fagurfræði, hefðum og nútíma í endingargóðan fatnað sem bæði vex með hverju barni og endist á milli kynslóða. As We Grow byggir á ábyrgum umhverfissjónarmiðum og afstöðu gagnvart líftíma og endingu framleiðsluvöru á tímum ofgnóttar. Tímalaus einfaldleiki hönnunar og einstök gæði vöru hafa ásamt samfélagslegri ábyrgð og metnaaðarfullri stefnu í umhverfismálum skapað fyrirtækinu sérstöðu heima og heiman.

Nánar um viðburðinn hér