Vorið kemur, heimur hlýnar...
Sýning á Skriðuklaustri
01.04 - 01.05 2023

Í ár var innblásturs leitað til skáldsins Jóhannesar úr Kötlum þegar undirbúin var vorsýning á Skriðuklaustri. Eftir þungan vetur um allt land var ákveðið að vorið og gróandinn yrði þema sýningarinnar. Flest verkin eru marglit, í skærum litum og úr fjölbreyttu hráefni. Sýningin mun vonandi minna okkur á að sumarið er á næsta leiti, litríkt og fallegt.
Verkin eru mjög fjölbreytt og sýnendur koma vítt og breytt af landinu: Anna Gunnardóttir, Auður Bergsteinsdóttir, Bjarni Þór Kristjánsson, Embla Sigurgeirsdóttir, Erla Björk Sigmundsdóttir, Guðný Hafsteinsdóttir, Guðrún Halldórsdóttir, Ingibjörg Ósk Þorvaldsdóttir, Jedúddamía (Kristrún Helga Marinósdóttir) og Ólöf Erla Bjarnadóttir.
Sýningin var samstarfsverkefni HANDVERKS OG HÖNNUNAR og Gunnarsstofnunar.
 
Dags: 01.04 - 01.05 2023
Staðsetning: Gunnarsstofnun Skriðuklaustri