- 2 stk.
- 03.01.2018
Steinunn Björg Helgadóttir lauk námi frá textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands en auk þess nam hún við UIAH, (University of art and crafts ) í Helsinki og hefur sótt fjölmörg námskeið. Undanfarin ár hefur Steinunn Björg kennt myndmennt og fleira á grunnskólastigi. Steinunn Björg hefur fengist við vefnað frá því lauk námi en verkin sem hún sýnir nú eru öll nýleg, handofin í vefstól, diskamottur og dúkar úr hör og værðarvoð úr ull. Sýningin VOÐIR stóð frá 17. sept. til 4. okt. 2010.