- 9 stk.
- 11.12.2017
Þann 27. mars 2010 opnaði Svava K. Egilson sýninguna Þræðir á Skörinni hjá HANDVERKI OG HÖNNUN. Svava hefur lagt stund á nám í ýmsum skólum sem leggja áherslu á mismunandi listform, þar á meðal er Myndlistarskólinn á Akureyri.
Í verkum hennar er að finna ýmis tákn sem rekja má til íslenskrar náttúru, en litir og form í náttúrunni hafa ávallt hrifið Svövu. Verkin sem hún sýnir flokkast undir listsaum eða Art Quilt en einnig sýnir hún hönnun sína á fylgihlutum þar á meðal hatta, handstúkur og nælur.