- 17 stk.
- 11.12.2017
Ragnar G. Einarsson opnaði sýningu á skörinni þann 26. feb. 2010.
Bókband er gamalgróin iðngrein sem á sér langa sögu. Hún byggir á vönduðu handverki þar sem rétt handbragð og auga fyrir formfegurð ráða ferðinni. Listbókband er hreint handverk sem í mörgu styður sig við sömu markmið og aðrar listgreinar. Skilin milli handverks og listar eru því óljós þar sem greinarnar styðja hvor aðra.
Ragnar nam bókband í Iðnskólanum í Reykjavík og í Hólabókbandi. Hann lauk meistaraprófi árið 1972.