- 8 stk.
- 22.01.2018
Birna Kristín Friðriksdóttir sýnir værðarvoðir úr íslenskri ull sem hún hefur skreytt með merinóull og silki. Voðirnar eru vélprjónaðar en hún notar þæfingarnálar við skreytinguna og fullklárar verkið með blautþæfing. Innblásturinn að verkum Birnu kemur beint frá íslenskri náttúru og á þessari sýningu vinnur hún með Helenu Óladóttur sem sýnir ljósmyndir af sama yrkisefni og Birna vinnur í textíl. Sýningin stóð 23. maí. til 22. júní 2013.