- 1 stk.
- 22.01.2018
Þorgerður Björg Þórðardóttir, sem oftast er kölluð Gerða, fæddist á Húsavík 24. október 1974. Gerða hefur fylgst vel með fjölmiðlamanninum Hermanni Gunnarssyni frá því þættirnir Á tali hjá Hemma Gunn voru í sjónvarpinu og kann flest utan að sem hann hefur komið nærri. Hemmi Gunn, eins og hann er kallaður hefur veitt Gerðu mikla gleði í gegnum árin og hefur Gerða teiknað og málað mikið af myndum af honum, ásamt því að hafa unnið Hemma í mósaík og fleira. Í tilefni að List án Landamæra málaði Gerða fjöldann allan af myndum af Hemma Gunn sem hún fór svo með í Hönnunarverksmiðjuna til Arnhildar Pálmadóttur arkitekts. Þar var Hemmi Gunn skannaður inn í tölvu og skorinn út með leiser –geisla og til varð Hemminn Gleðigjafi. Næsta skref var að fara með Hemmann Gleðigjafa í Miðjuna sem er iðja og dagvist fyrir fatlaða á Húsavík, þar sem notendur tóku strax til við að pússa hann og mála og gleðin tók öll völd.