- 14 stk.
- 22.01.2018
Pekka sýnir borð og hillur hannað með léttleika og einfalda samsetningu í fyrirrúmi. Kristín sýnir hluti unna úr steyptu postulíni, skálar og bolla. Einnig sýnir hún hluti sem hún vann á vinnustofu í Japan haustið 2011 og sýndi í gallery TAO í Tokyo. En það eru hlandsvelgir fyrir konur sem kjósa að pissa standandi og kallast Skessuhorn og einnig litlar grátskálar fyrir þá sem kjósa að safna tárum sínum saman og endurnýta (t.d. vökva blóm eða gefa kettinum í mjólkina). Pekka sendi hluti sína ósamsetta og ómeðhöndlaða frá Finnlandi og Kristín lauk viðsamsetninguna og meðhöndlaði með olíu og málaði borðplötur borðanna með sína hluti til hliðsjónar hvað varðar liti o.þ.h. Sýningin stóð frá 22. mars til 18. apríl 2012.