- 12 stk.
- 05.01.2018
Hulda Eðvaldsdóttir sótti námskeið í hönnun á vegum Þekkingarnets Austurlands og Þorpsins – skapandi samfélags á Egilsstöðum, einn vetur. Afrakstur þess námskeiðs voru snagar úr lambahornum, sem urðu lokaverkefni Huldu á námskeiðinu. „Hugmyndin að snögunum kom frá langafa mínum, Jóni Stefánssyni í Möðrudal, sem bjó til snaga og ýmsa aðra nytjahluti úr hornum og ég heillaðist mjög af. Ég ákvað að þróa hugmyndina að snögum úr lambahornum eftir mínu höfði og útkoman varð Gibbagibb-snagar.“ Sýningin stóð frá 24. mars til 12. apríl 2011.