- 9 stk.
- 05.01.2018
Steinunn Bergsteinsdóttir leitar fanga í heim furðudýra fortíðarinnar á sýningu sinni á mósaíkmyndum á Skörinni, í húsi Handverks og hönnunar í Aðalstræti sem var opnuð þann 3. mars 2011. Dulúðin hefur löngum heillað manninn og á gömlum landakortum og í handritum er að finna myndir af ýmsum sjávarskrýmslum, sem forfeður okkar bjuggust við að hitta og hittu, aðallega í sjónum umhverfis landið. Þó gat verið að þau sæust líka á fjörum og í vötnum. Þessi trú hefur lifað allt fram á okkar daga. Ekki eru nema rúm hundrað ár síðan Katanesdýrið var á ferli og af því eru til greinargóðar lýsingar og teikningar. Þennan heim óskýranlegra óvætta sýnir Steinunn í verkum sínum. Sýningin stóð til 22. mars 2011